18. nóvember 2008 klukkan 11:49
Arnrún Lea Einarsdóttir
14. nóvember 2008 klukkan 23:48
.. þangað til Serafína verður 20 ára. Fannst það tilefni til að blogga. Ef ég væri ekki að verða 20 ára eftir aðeins 3 daga hefði ég líklegast ekki bloggað. Það sem mér finnst skemmtilegast við afmælisdaga er það, að sama hversu gamall þú verður ertu samt alltaf afmælisbarn. 73 ár barn, finnst það alveg frábært. Mér finnst líka gaman að fá sms frá fólki sem ég bjóst ekki við að myndi muna eftir því að ég ætti afmæli.
Það er annars alltaf bra sama sagan hér í Keflavík. Ég vakna enþá bra í skólann, fer í ræktina og fer síðan heim að borða og horfa á sjónvarpið þangað til ég fer að sofa. Ég hef samt bæði gert og upplifað skemmtilega hluti í skólanum. Svo ég nefni dæmi þá fengum við alveg ótrúlega sexy landhelgisgæslu þyrlumann í heimsókn til okkar, við fengum að prófa að slökkva elda með hjálp slökkvuliðsmanna í silfurlituðum geimgöllum, við fórum í sundlaug Keflavíkur og prófuðum björgunarvestin sem eru í flugvélunum og björguðum hvor annari uppí björgunarbát og í þar síðustu viku fengum við að fara inn í IcelandAir flugskýlið í Leifstöð að skoða tvær flugvélar bæði að utan og innan.
Ég sat í sófanum áðan með pabba og Ásdísi og við vorum að horfa á sjónvarpið þegar ég fer allt einu að velta því fyrir mér hversu fyndið það væri ef næst þegar einhver bæði um númerið mitt myndi ég svara: "8 milljónir, 625 þúsund, 790" Eins og ég væri að tala um peninga. Mér og Ásdísi fannst þetta alveg ótrúlega fyndið en pabbi var ekki á sömu nótunum. Hvað finnst þér?

- hengilmæna (bráðum 20 ára barn) 
Ps: Fyrir þá sem náðu því ekki þá er númerið mitt semsagt 8625790
Arnrún Lea Einarsdóttir
03. október 2008 klukkan 20:49
Meira en tvær vikur síðan ég bloggaði síðast svo lognið kom en stormurinn hefur ekki enþá komið. Ég hef komist að því að google er einskonar guð nútímans. Ef við höfum spurningu um eitthvað þá förum við á google, eða ég geri það allaveganna. Ég hef einnig komist að því að goggle er bæði mjög nauðsynlegt og handhægt ef maður býr á Reykjavíkursvæðinu. Hérna er þetta ekki eins og á Akureyri þar sem allir þekkja alla, eða þekkja allaveganna einhvern sem þekkir bróðir frænda kærustu einhvers hehe. Hér googlar maður fólk, hljómar eins og ég sé alltaf að googla einhvern en svo er ekki. Ég googlaði sjálfa mig um daginn og það kom meira upp en ég hélt, m.a. heimasíða sem ég gerði þegar ég var í 1.bekk í MA og fullt, fullt af myndum.

Ég veit ekki hvar þessi mynd er tekin en ég held að ég sé í þriðja bekk þarna

Þessi mynd er tekin í 19 ára afmæli hjá Auði Ýr og á myndinni með mér eru Herdís og Sandra

Þarna er ég á bautanum með 3.A, hressa hehe

Hérna er ég að láta eins og asni á staffa jólahlaðborði í Leirunesti

Hérna er ég að tala á mynd á Sigurrósar tónleikum í Laugardalshöll

Ég, Hulda og Anna í hittingi heima hjá Margréti. Ótrúlega hressar og sætar ungar stelpur

Hérna er ég í 1. bekkar partyi heima hjá Lilju Áka..

og hérna er ég busi í MA.
- orðin gömul hengilmæna?
Arnrún Lea Einarsdóttir
17. september 2008 klukkan 22:14
Mér lýst betur á Serafínu þegar hún er hvít þó svo að myndin á hausnum á henni sé alveg fáránleg.
Lífið hér á vellinum virðist ætla að vera eins í allan vetur svo ekki búast við því að ég hafi frá mörgu að segja. Ég vakna og fer í skólan, eða ölluheldur keyri ég í skólann þó svo að það taki mið aðeins nokkrar mínútur að labba. Ég kem heim og borða og síðan keyri ég inn í Keflavík til að fara í ræktina. Já, þú last rétt! Letihaugurinn sem hefur ekki hreyft sig síðan hún hætti að æfa fótbolta fyrir 5 árum og nennir ekki einu sinni að labba í skólann er núna farin að fara í ræktina. Hún meira að segja keypti sér 6 mánaða kort í gær. Þegar ég er búin í ræktinni fer ég heim, baða mig og borða kvöldmat. Síðan horfi ég á sjónvarpið þangað til ég fer að sofa, eða ekki sofa.
Þeir sem þekkja mig vita að ég get ekki sofið þegar það er vont veður, sem er ekki gott því sólin skýn sjaldan hérna á vellnum. Hér er yfirleitt rok og rigning og veðrið var svo klikkað í gær að ég svaf ekki dúr og þegar kom að því að fara í skólann í morgun orkaði ég það ekki. Mér var svo illt í bakinu afþví að liggja og bilta mér í alla nótt að ég hef ekki staðið upp úr rúminu í allan dag. Ég er bra búin að sofa og horfa á sjónvarpið þess á milli. Núna á ég að vera læra fyrir próf, alveg ótrúlegt hvað maður gefur sér alltaf tíma í að blogga þegar maður á að vera læra. Vissir þú að skamstöfunin AOG þíðir Airplane on ground?

Be strong now because thins will get better, it might be stormy now but it can't rain forever.
- Þreytt Hengilmæna 
ps: Endilega botnið titilinn, alltaf vegleg verðlaun í boði hjá Serafínu
Arnrún Lea Einarsdóttir
08. september 2008 klukkan 22:09
- Hver hefði trúað því að Hengilmæna myndi byrja að blogga aftur?
- Margt hefur gerst síðan ég ákvað að leggja Serafínu á hilluna fram yfir næstu helgi.
- 7 mánuðir hafa liðið, ef þið hafið ekki tekið eftir því svo fram yfir næstu helgi hvað?
- Páskarnir komu og ég fór suður til að hitta fjölskylduna.
- Það var þá sem ég fékk vinnuna hjá Mountaineers.
- Ég útskrifaðist með bestu einkunnir sem ég hef fengið síðan ég var í fyrsta bekk í MA
- Mér var boðið út að borða á Friðrik fimmta í tilefni af áfanganum
- Ég flutti suður sunnudaginn eftir og byrjaði í nýju vinnunna á mánudeginum.
- Ég hef aldrei unnir jafn leiðinlega vinnu og ég hef ekki verið með svona léleg sumarlaun síðan ég var 16 ár og vann við að steikja hamborgara í Leirunesti.
- Loksins, loksins var komið að ferðinni til Tenerife.
- Ég sprengdi í mér hljóðhimnu og þurfti að fara á sýklalyf
- Hver trúir því að partyljónið ég hafi aðeins drukkið 4 daga af 14 á Tenerifa og aðeins 4 helgar í allt sumar?
- Húsið okkar í Mosó er ekki enþá tilbúið svo ég bjó hjá ömmu í sumar.
- Þegar ég fékk að vita að ég komst inn í flugfreyjunám Keilis ákvað ég að flytja til Keflavíkur.
- Skólin er byrjaðu og ég efast ekki um að þetta verði strembið en ég hef strax eignast nýjar vinkonur sem eiga eflaust eftir að hjálpa mér í gegnum þetta.
- Punktablogg eru góð eftir að hafa tekið langa pásu í blogga, eða hvað finnst þér?
- Hengilmæna sem hefði aldrei trúað þessu 
Arnrún Lea Einarsdóttir
12. febrúar 2008 klukkan 00:46
.. everything you say runs right trough me.. Úr hvaða þætti er þetta? Mér hefur farið aftur í færslunum og tvær síðustu færslur voru arfa lélegar. Mér finnst eins og hafi ekki frá miklu að segja þessa daganna svo ég er að spá í að leggja serafínu mína á hilluna í smá stund, allaveganna fram yfir næstu helgi nema auðvitað eitthvað viðbjóðslega skemmtilegt gerist á næstu dögum, sem ég efast reyndar um. Ég er Hálfdán og ég er hálf down. Hæ Hálfdán! Ég setti samt inn nokkrar myndir frá djammi 25. jan, 2. feb og 9. feb held ég og nýja könnun svo njótið vel þangað til næst og já..

Lag bloggsins: Move along - The All American Rejects

- hálf down hengilmæna
Arnrún Lea Einarsdóttir
06. febrúar 2008 klukkan 20:12
Kannski er það rétt hjá Vésu, að myndin mín segi að ég sé dóni því karma beit mig í rassinn síðasta föstudag og ég var miður mín á laugardaginn. Þetta er minn hlutur og það sem ég geri til á láta mér líða vel kemur engum við nema mér. Ég er löngu komin með leið á þessari stríðni, ég vil að fólk taki mig alvarlega. Hens brúna hárið. Alveg eins og ég man óljóst eftir því að hafa verið í 10 bekk þá man ég óljóst eftir síðasta laugardegi. Mig dreymdi síðan að ég hefði eignast tvíbura stelpur og ég skírði þær Berglind og Auður. Hvað það þíðir veit ég ekki, ég á enþá eftir að spyrja ömmu Ólöfu. Það er loksins hætt að snjóa og vonandi á eftir að hætta á snjóa yfir mig þangað til næstu helgi. Ég set svo myndir inn við tækifæri, nenni því ekki núna. Fann hins vegar þessa mynd af sjálfri mér á goggle. Eins og ég sagði þá man ég óljóst eftir þessu tímabili þegar ég var í 10.bekk en þetta er þitt að dæma.
Ég og Arnar Ómars líklegast á opnu húsi.
- Alvarlega hengilmæna

Arnrún Lea Einarsdóttir
02. febrúar 2008 klukkan 12:34
Sat í svartholi djöfulsins þegar ég skrifaði þessa færslu. Sumir vildu meina að það væri Dalvík en ég vil meina að það sé Verkmenntaskólinn á Akureyri. Ég var að bíða eftir Brynju. Stundum finnst mér ég vera svo fáfróð um svo marga hluti. Í uppeldisfræði í dag áttum við að teikna mynd af manni eða konu. Þetta mátti vera mynd af karatemanni eða sveitakonu eða bra hvernig manni eða konu sem er, þetta mátti bra ekki vera óla prik tekning heldur áttum við að vanda til verka. Ég vandaði mig ótrúlega mikið við að teikna konu. Hún var með alveg eins hár og ég og berbrjósta. Mér fannst það viðbjóðslega fyndið að teikna konuna mína berbrjósta þangað til að Vala kennari sagðir okkur það að myndin ætti að segja til um það hversu gáfuð við værum. Hvað finst þér það segja um mig að ég hafi teiknað mynd af konum sem var með alveg eins hár og ég og berbrjósta?
- heimska hengilmæna?
Arnrún Lea Einarsdóttir
29. janúar 2008 klukkan 20:37
Þeir hafa komið og farið síðan þá og hvort það eru góðar eða slæmar fréttir veit ég ekki. Einn þeirra sagði: " Ég vildi óska að ég gæti bætt við 6 tímum í sólarhringinn, því þá gæti ég sofið lengur núna". Brynja sagði að hann væri finebebbeline. Ég tek undir það að hann sé fine en ég tek líka undir það að bæta við 6 tímum í sólarhringinn til að sofa lengur, því ég er ekki að nenna neinu þessa dagana, eða öllu heldur virku dagana. Ég bíð bra eftir því að það komi helgi og við stelpurnar erum sko að fara á Dave Spoon næsta laugardag. Get varla beðið. Eins og ég get varla beðið eftir því að fara til Tenerife. Ég er nefninlega að fara til Tenerife í tvær vikur í byrjun júni með Brynju og Tinnu. Það verður viðbjóðslega gaman. Síðasta helgi var líka vibbbibbilega skemmtileg og hún byrjaði á fimmtudegi. Andrea frænka og ég pöntuðum okkur pizzu og leigðum okkur spólu og biðum eftir því að Brynja væri búin í vinnunni. Þá fórum við á Amour og Tinnsla kom með. Það voru einungis teknar ljótar myndir af frænkum þetta kvöld og ein af Hára. Ég setti samt inn myndir af laugardagskvöldinu sem ég stal hjá Brynju og Hildi.

Lag bloggsins: Bad Girl - Dave Spoon feat. Lisa Maffia

- Hengilmæna krúttbúbbulúbb

Arnrún Lea Einarsdóttir
23. janúar 2008 klukkan 11:57
Portion for Foxes
There's blood in my mouth 'cause I've been biting my tongue all week
I keep on talkin' trash but I never say anything
And the talkin' leads to touchin'
and the touchin' leads to sex
and then there is no mystery left
And it's bad news
Baby, I'm bad news
I'm just bad news, bad news, bad news
I know I'm alone if I'm with or without you
but just being around you offers me another form of relief
When the lonliness leads to bad dreams
and the bad dreams lead me to callin' you
and I call you and say "C'mere!"
And it's bad news
Baby, I'm bad news
I'm just bad news, bad news, bad news
And it's bad news
Baby, it's bad news
It's just bad news, bad news, bad news
'Cause you're just damage control
for a walking corpse like me - like you
'Cause we'll all be
Portions for foxes
Yeah, we'll all be
Portions for foxes
There's a pretty young thing in front of you
and she's real pretty and she's real into you
and then she's sleepin' inside of you
and the talkin' leads to touchin'
and the touchin' leads to sex
and then there is no mystery left
And it's bad news
I don't blame you
I do the same thing
I get lonely too
And you're bad news
My friends tell me to leave you
That you're bad news, bad news, bad news
You're bad news
Baby you're bad news
and you're bad news
Baby you're bad news
and you're bad news
I don't care, I like you
and you're bad news
I don't care, I like you
I like you
- Hengilmæna 

Arnrún Lea Einarsdóttir