google oogleg oglego glegoo legoog egoogl google
03. október 2008 klukkan 20:49
Meira en tvær vikur síðan ég bloggaði síðast svo lognið kom en stormurinn hefur ekki enþá komið. Ég hef komist að því að google er einskonar guð nútímans. Ef við höfum spurningu um eitthvað þá förum við á google, eða ég geri það allaveganna. Ég hef einnig komist að því að goggle er bæði mjög nauðsynlegt og handhægt ef maður býr á Reykjavíkursvæðinu. Hérna er þetta ekki eins og á Akureyri þar sem allir þekkja alla, eða þekkja allaveganna einhvern sem þekkir bróðir frænda kærustu einhvers hehe. Hér googlar maður fólk, hljómar eins og ég sé alltaf að googla einhvern en svo er ekki. Ég googlaði sjálfa mig um daginn og það kom meira upp en ég hélt, m.a. heimasíða sem ég gerði þegar ég var í 1.bekk í MA og fullt, fullt af myndum.

Ég veit ekki hvar þessi mynd er tekin en ég held að ég sé í þriðja bekk þarna

Þessi mynd er tekin í 19 ára afmæli hjá Auði Ýr og á myndinni með mér eru Herdís og Sandra

Þarna er ég á bautanum með 3.A, hressa hehe

Hérna er ég að láta eins og asni á staffa jólahlaðborði í Leirunesti

Hérna er ég að tala á mynd á Sigurrósar tónleikum í Laugardalshöll

Ég, Hulda og Anna í hittingi heima hjá Margréti. Ótrúlega hressar og sætar ungar stelpur

Hérna er ég í 1. bekkar partyi heima hjá Lilju Áka..

og hérna er ég busi í MA.
- orðin gömul hengilmæna?

Arnrún Lea Einarsdóttir

Hlakka til að sjá þig SOON:D
Love